
Valdís Ólafsdóttir útskrifaðist úr tveggja ára diplómanámi á keramikbraut frá Myndlistaskólanum í Reykjavík í maí 2020. Hún byrjaði að læra keramik árið 2014 í Myndlistaskóla Kópavogs og vann við það meðfram annarri vinnu og skóla frá 2015 en eftir útskrift árið 2020 hefur hún eingöngu unnið sem keramiker eða leirlistakona. Valdís hannar undir merkinu Dísa- Litlu hlutir lífsins og vinnur mest með postulín sem hún steypir í gifsmót. Hún heillast mikið af ýmiskonar áferð og mynstri og sker út einskonar óreglulegt ‘diamond cut’ mynstur og notar mikið svartar sápukúlur sem hún blæs á postulínið. Einnig notar hún íslenskan svartan sand, ösku og vikur út í postulínið og gefur það fallega áferð og er tenging við hina íslensku náttúru.Þar að auki handmótar Valdís veggkúpla og rennir á rennibekk ýmiskonar bolla sem hún svo skreytir með leirblómum. Hún notar aðallega steinleir til handmótunar og rennslu. Náttúrulegir og dempaðir litir heilla hana mest. Hún er með rúmgóða vinnustofu heima hjá sér í Kópavoginum.
